Fjarskiptafyrirtæki:

Vodafone valtakki
valtakki_mila
RÚV valtakki

Tæknigreinar:

valtakki_httv
valtakki skýrslugerð
valtakki_skjalasafn
valtakki_gervihnattatækni

Félög:

Loftskeytafélag
Forsíða arrow Fjarskiptafyrirtæki arrow RÚV arrow 4. Svæðisútvörp RÚV

Svæðisstöðvar

 

 

 

 






 



Svæðisútvörp RÚV


Ríkisútvarpið rekur eigin svæðisútvörp á fjórum stöðum á landinu, þ.e.:

1. Svæðisútvarp Norðurlands á Akureyri
2. Svæðisútvarp Vestfjarða á Ísafirði 
3. Svæðisútvarp Austurlands á Egilsstöðum

Hlutverk þessara deilda RÚV er annars vegar að annast svæðisbundnar útsendingar á ákveðnum tímum dagsins fyrir viðkomandi landshluta og hins vegar að sinna fréttaþjónustu fyrir fréttastofur Útvarps og Sjónvarps og framleiða þætti og dagskrárefni fyrir báðar landsrásir Ríkisútvarpsins, Rás 1 og Rás 2.
Til þessara svæðisbundnu útsendinga er dreifikerfi Rásar 2 notað. Dreifikerfi Rásar 2 í viðkomandi landshluta er tengt svæðisstöðinni meðan á þessari útsendingu stendur, en á meðan fellur dagskrá Rásar 2 frá Reykjavík niður á viðkomandi landssvæði.

Í hér meðfylgjandi skrá yfir FM-senda RÚV (takki hér fyrir neðan) er merkt inn hvaða sendar tengjast hverju svæðisútvarpi. N=Norðurland, V=Vestfirðir, A=Austurland.

takki_fm_tidnir_blatt.jpg



 

 Útvarp Norðurlands

 Dreifingarsvæði:  Frá Ströndum í vestri til Bakkaflóa í austri 
 Útsendingartími:  Mánudaga - föstudaga kl. 17.25 - 18.00. 
 Dreifikerfi:   Dreifikerfi Rásar 2 á Norðurlandi
   Nánar um Útvarp Norðurlands


 Útvarp Vestfjarða

 Dreifingarsvæði:  Frá Ströndum (Hólmavík & nágr.),
 Reykhólum & nágr. og til Patreksfjarðar
 Útsendingartími:  Mánudaga - föstudaga kl. 17.25 - 18.00. 
 Dreifikerfi:   Dreifikerfi Rásar 2 á Vesturlandi
   Nánar um Útvarp Vestfjörðum


 Útvarp Austurlands

 Dreifingarsvæði:  Frá Vopnafirði í norðri til Djúpavogs í austri
 Útsendingartími:  Mánudaga - föstudaga kl. 17.25 - 18.00. 
 Dreifikerfi:   Dreifikerfi Rásar 2 á Austurlandi
   Nánar um Útvarp Austurlands
Síðast uppfært ( laugardagur, 07 júní 2008 )
 
< Fyrri   Næsti >
Auglýsing FJ