|
RÚV á Internetinu / Vef-TV / Vef-Radio
Nálgast má fréttir RÚV á heimasíðunni: www.ruv.is, bæði sem texta, myndir og hljóð. Einnig er Textavarpið á netinu, á slóðinni www.textavarp.is.
Beinar útsendingar sjónvarpsins á Netinu eru á Windows Media-formi. Báðar rásir Útvarpsins eru sendar út beint allan sólarhringinn á Netinu í samstarfi við Símann.
Dagskrárliðir Sjónvarpsins sem sendir eru út á Netinu eru m.a. Fréttir, Kastljósið, Táknmálsfréttir, Tíufréttir, Helgarsportið.
Nauðsynlegt er að vera með útgáfu 9 eða nýrri af Windows Media spilaranum til að geta fylgst með útsendingunni í fullum gæðum.
|