
Um RÚV
Ríkisútvarpið var stofnað árið 1930 og hóf útsendingar Rás-1 21. desember það ár. Þann 30. september árið 1966 hóf Sjónvarpið útsendingar og árið 1983 tók Rás 2 til starfa.
1. apríl 2007 var rekstrarsviði Ríksiútvarpsins breytt í hlutafélag, Ríkisútvarpið ohf. Starfseminni er skipt niður á 5 svið; rekstur og fjármál, dagskrá Útvarpsins, dagskrá Sjónvarpsins, fréttir Útvarpsins og fréttir Sjónvarpsins. Hlutverk stofnunarinnar er nú skilgreint með þjónustusamningi við menntamálaráðuneytið.
Ríkisútvarpið skal leggja rækt við íslenska tungu, sögu þjóðarinnar og menningararfleifð. Ríkisútvarpið skal m.a. veita almenna fréttaþjónustu og vera vettvangur fyrir mismunandi skoðanir á þeim málum sem efst eru á baugi hverju sinni eða almenning varða. Það skal flytja fjölbreytt skemmtiefni við hæfi fólks á öllum aldri. Sérstaklega skal þess gætt að hafa á boðstólum fjölbreytt efni við hæfi barna.
Efni þessarar síðu:
|