|
|
- míla leggur línurnar
|
 |
Míla selur vörur til fyrirtækja og stofnana sem stunda fjarskiptastarfsemi og hafa almenna heimild til fjarskiptareksturs og fjarskiptaþjónustu.
Fjarskiptakerfi Mílu er mjög víðtækt og dreift og byggir á tveimur aðal kerfum, stofnneti og aðgangsneti. Einnig rekur Míla alþjóðanet.
Kjarnastarfsemi Mílu er að byggja upp og reka fullkomnasta fjarskiptanet á Íslandi. Aðgengi að fjarskiptaneti Mílu er opið öllum öðrum fjarskiptafyrirtækjum á markaðnum. Míla veitir þeim aðgengi að því í gegn um mismunandi lausnir. Hlutverk Mílu er að selja lausnir sínar í heildsölu til fyrirtækja og stofnana sem stunda fjarskiptastarfsemi. Míla sérhæfir sig m.a. í rekstri og ráðgjöf vegna fjarskiptakerfa, aðstöðuleigu fyrir fyrirtæki í upplýsingatækni og ýmsa þjónustu við dreifikerfi. Míla ehf. byggir á starfsemi fjarskiptanets Símans sem lagt hefur grunn að öllum fjarskiptum á Íslandi. Fyrirtækið var nýlega skilið frá annarri starfsemi Símans og er í eigu Skipta hf.
Efni þessarar síðu:
|