|
Félag Íslenskra Loftskeytamanna

FÍL - Félag Íslenskra Loftskeytamanna var upphaflega stofnað 9.júlí árið 1923. Félagið hefur á umliðnum árum eða frá 1938 verið aðildarfélag í FFSÍ (Farmanna-og fiskimannasambandi Íslands), en áður var félagið aðildarfélag í ASÍ. Fjöldi félagsmanna hefur dregist saman hin síðustu ár, en markmið félagsins hefur verið að standa vörð um samningalegan rétt félagsmanna. Fyrir 2-3 árum hætti síðasti loftskeytamaðurinn siglingum á íslenska kaupskipaflotanum.
Tilgangur félagsins með þátttöku í þessari heimasíðu er m. a. sá að veita félagsmönnum og öðrum áhugamönnum um sögu fjarskiptanna aðgengi að upplýsingum og möguleika á að senda inn til félagsins netföng og ýmsan fróðleik sem síðar mætti vista hér á undirsíðum félagsins þannig að þeir sem áhuga hafa á þessum málum geti á auðveldan hátt kynnst öllum þeim sem gefa sig fram um áframhald um sögu fjarskiptanna frá fyrri tíð á Íslandi og víðar. Sendið FÍL rafpóst.
Klikkið á merkið til að sjá fána félagsins
Félag Íslenskra Loftskeytamanna - Efnisyfirlit:
|