Fjarskiptafyrirtæki:

Vodafone valtakki
valtakki_mila
RÚV valtakki

Tæknigreinar:

valtakki_httv
valtakki skýrslugerð
valtakki_skjalasafn
valtakki_gervihnattatækni

Félög:

Loftskeytafélag

Póstlistinn:

Skráðu þig á póstlistann og fáðu
send fréttabréf og tilkynningar.







Forsíða arrow Fréttir
Fréttir
Nýjir Digital Ísland endurvarpar á vesturlandi PDF Prenta Tölvupóstur

Digital ÍslandÍ síðustu viku settu tæknimenn Vodafone upp tvo nýja UHF-endurvarpa fyrir Digital Ísland á vesturlandi. Þeir eru:

1. Í Girðisholti á Mýrum í Borgarfirði var settur endurvarpi á UHF rás 29 og sendir hann merki sitt til austurs yfir Mela og Leirársveit. Sumarhúsabyggðir undir Hafnarfjalli ná þessu merki einnig vel.

2. Á Svarfhólsháls við Svínadal var settur endurvarpi og er hann á UHF rás 26. Hann dekkar Svínadal og hluta Leirársveitar og Hvalfjarðar, auk þess að dekka ágætlega upp Eilífsdal við Meðalfellsvatn.

Með þessum endurvörpum og einnig endurvarpanum sem nýlega var settur upp í Skorradal hefur Vodafone stórbæta dreifingu á Digital Ísland og þar með þjónustuna við stórar sumarhúsabyggðir. Það lætur nærri að með þessir endurvarpar nái til um 1000 sumarhúsa sem ýmist höfðu ekkert eða þá mjög lélegt sjónvarpsmerki.

Nánari upplýsingar um endurvarpana má finna hér á síðunni í Vodafone-kaflanum, þ.m.t. nýtt kort yfir Digital Ísland dreifikerfið.

 
Vodafone: Ný GSM stöð við Landeyjahöfn PDF Prenta Tölvupóstur

GSMNý GSM stöð frá Vodafone var gangsett í Landeyjahöfn nokkru áður en siglingar Herjólfs færðust þangað úr Þorlákshöfn, þann 20. júlí. Farsímanotkun á svæðinu mun aukast verulega við opnun hafnarinnar og því var nauðsynlegt að auka afkastagetu kerfisins. Þörfin verður mest í kringum verslunarmannahelgina, þegar þúsundir Þjóðhátíðargesta sigla milli lands og Eyja.

Þess má einnig geta að færanleg GSM símstöð Vodafone (sérútbúin kerra) er komin til Eyja, en hún er gjarnan gangsett þar sem von er á miklu fjölmenni til að tryggja okkar viðskiptavinum gott GSM samband þar sem álag á símkerfið er óvenju mikið í stuttan tíma í senn. Færanlega símstöðin verður að sjálfsögðu prófuð ítarlega áður en Þjóðhátíðin gengur í garð, en afkastageta hennar hefur verið tvöfölduð frá því í fyrra sem kemur sér vel þar sem búist er við metfjölda gesta á Þjóðhátíðina í ár.

 
Vodafone: Digital Ísland endurvarpi í Skorradal PDF Prenta Tölvupóstur

sendiloftnet140.jpgSumarbústaðaeigendur í Skorradal geta nú orðið náð útsendingum Digital Ísland í Skorradal. Endurvarpssendir er kominn upp sem staðsettur er við stífluhús Andakílsvirkjunar og næst merki hans vel inn dalinn. Mælingar sýna að þegar komið er innst í dalinn þar sem ekki er lengur sjónlína má samt ná merki frá endurvarpssendinum ef notaður er loftnetsmagnari. Stór hluti sumarbústaða í dalnum nær þessu merki þó án magnara. Sendingin er á UHF rás E29. Sjónvarpsdagskrár á þessum sendir eru: RÚV / Stöð 2 / Stöð 2+ / Stöð 2 Bíó / Stöð 2 Extra / SkjárEinn / Stöð 2 Sport / Stöð 2 Sport 2  og hljóðvarpsdagskrár: Bylgjan / X-ið / Létt Bylgjan.

 
Síminn: Ljósnet inn á um fjörutíu þúsund heimili á höfuðborgarsvæðinu PDF Prenta Tölvupóstur

siminn_ljosanet..jpgSíminn hefur ákveðið að ráðast í umfangsmikla uppbyggingu sem felur í sér breytingu á Breiðbandi Símans yfir í Ljósnet Símans. Þetta þýðir að á næstu tveimur árum verði um 40 þúsund heimili á höfuðborgarsvæðinu tengd við svokallað ljósnet Símans.  Þetta er bylting fyrir neytendur sem munu nú fá aðgang að allt að 100 Mb hraða á sekúndu á mjög góðu verði. Á einungis tveimur árum mun þessum fjörutíu þúsund heimilum gefast kostur  á margföldum Internethraða og háskerpu-, gagnvirku sjónvarpi svo fátt eitt sé nefnt.
Meðfylgjandi mynd sýnir áætlaða uppbyggingu á Ljósneti Símans. Á þessu svæði eru um 60 þúsund heimili en 40 þúsund heimili munu eiga kost á því að tengjast Ljósneti Símans. Sjá nánar á vefsíðu Símans.  Sjá einnig stærra kort með því að klikka á myndina.

 
IceCell: Hættir við að byggja GSM-kerfi á Ísland PDF Prenta Tölvupóstur

gsm_island.jpgPóst- og fjarskiptastofnun hefur afturkallað tíðniheimild farsímafyrirtækisins IceCell fyrir GSM 1800 farsímanet frá árinu 2007.  Tíðniheimildin er afturkölluð vegna vanefnda fyrirtækisins á að standa við skilmála heimildarinnar, sem kvað á um uppbyggingu farsímanets í áföngum fyrir tiltekin tímamörk. Í frétt sem birtist á mbl.is árið 2007 kom fram að fjarskiptafyrirtækið Icecell sé hefja vinnu við uppsetningu á sendum og öðrum búnaði og fyrirhugar að að hefja rekstur þjónustu sinnar í ársbyrjun 2008. Hafði Icecell gert samning við Mílu ehf. um hýsingu á búnaði.
Icecell hafði í hyggju að ná til 98% landsmanna með GSM dreifikerfi sínu. Icecell er í eigu svissneskra aðila og eru höfuðsstöðvar þeirra á Íslandi á Flugvallarvegi í húsnæði Flugbjörgu. Í svari IceCell við fyrirspurn frá Póst- og fjarskiptastofnun á síðasta ári kemur fram að fjármálakreppan á Íslandi hafi spillt áformum IceCell frá upphafi.

Sjá nánar á síðu Póst- og fjarskiptastofnunar

 
Skjámynd ehf: Minnsta PC-tölva í heimi PDF Prenta Tölvupóstur
fit_pc_lykill140.jpgfit-PC2 er PC-tölva sem er lítil að utan en stór að innan. Tölvan er einungis 101mm x 115mm x 27mm að stærð. Þrátt fyrir lítið ytra umfang er hér um að ræða öfluga PC-tölvu sem hentar fyrir alla almenna tölvunvinnu á heimili eða vinnustað. Vinnsluhraðinn er 1,6GHz, innra minni 1GByte og harður diskur er 160GByte (2,5"). Með tölvunni fylgir lítill aflgjafi sem breytir 230VAC í 12VDC sem er vinnuspenna tölvunnar. Þar af leiðandi er þessi tölva hentug bæði til notkunar í bátum og bílum þar sem 12VDC spenna er alltaf fyrir hendi. fit-PC2 vinnur alveg hljóðlaust þar sem hún inniheldur enga kæliviftu. Aflnotkun er einungis 8W max. Hægt er að fá tölvuna meðm mismunandi stýrikerfum, þ.e. Linux, Windows-XP og Windows-7.  Skjámynd ehf er umboðsaðili fyrir fit-PC2 á Íslandi en framleiðandinn er Compulab í Ísrael. Sjá nánar hér.
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 1 - 6 af 395
Vefsíður.is
Hringiðan
Smith&Norland
Skjamynd ehf