Póstlistinn:
Skráðu þig á póstlistann og fáðu
send fréttabréf og tilkynningar.
Innskráning á lokað svæði:
|
Fréttir:
|
Vodafone: Digital Ísland endurvarpi í Skorradal |
|
Sumarbústaðaeigendur í Skorradal geta nú orðið náð útsendingum Digital Ísland í Skorradal. Endurvarpssendir er kominn upp sem staðsettur er við stífluhús Andakílsvirkjunar og næst merki hans vel inn dalinn. Mælingar sýna að þegar komið er innst í dalinn þar sem ekki er lengur sjónlína má samt ná merki frá endurvarpssendinum ef notaður er loftnetsmagnari. Stór hluti sumarbústaða í dalnum nær þessu merki þó án magnara. Sendingin er á UHF rás E29. Sjónvarpsdagskrár á þessum sendir eru: RÚV / Stöð 2 / Stöð 2+ / Stöð 2 Bíó / Stöð 2 Extra / SkjárEinn / Stöð 2 Sport / Stöð 2 Sport 2 og hljóðvarpsdagskrár: Bylgjan / X-ið / Létt Bylgjan.
|
|
|
Síminn: Ljósnet inn á um fjörutíu þúsund heimili á höfuðborgarsvæðinu |
|
Síminn hefur ákveðið að ráðast í umfangsmikla uppbyggingu sem felur í sér breytingu á Breiðbandi Símans yfir í Ljósnet Símans. Þetta þýðir að á næstu tveimur árum verði um 40 þúsund heimili á höfuðborgarsvæðinu tengd við svokallað ljósnet Símans. Þetta er bylting fyrir neytendur sem munu nú fá aðgang að allt að 100 Mb hraða á sekúndu á mjög góðu verði. Á einungis tveimur árum mun þessum fjörutíu þúsund heimilum gefast kostur á margföldum Internethraða og háskerpu-, gagnvirku sjónvarpi svo fátt eitt sé nefnt.
Meðfylgjandi mynd sýnir áætlaða uppbyggingu á Ljósneti Símans. Á þessu svæði eru um 60 þúsund heimili en 40 þúsund heimili munu eiga kost á því að tengjast Ljósneti Símans. Sjá nánar á vefsíðu Símans. Sjá einnig stærra kort með því að klikka á myndina.
|
|
|
IceCell: Hættir við að byggja GSM-kerfi á Ísland |
|
Póst- og fjarskiptastofnun hefur afturkallað tíðniheimild farsímafyrirtækisins IceCell fyrir GSM 1800 farsímanet frá árinu 2007. Tíðniheimildin er afturkölluð vegna vanefnda fyrirtækisins á að standa við skilmála heimildarinnar, sem kvað á um uppbyggingu farsímanets í áföngum fyrir tiltekin tímamörk. Í frétt sem birtist á mbl.is árið 2007 kom fram að fjarskiptafyrirtækið Icecell sé hefja vinnu við uppsetningu á sendum og öðrum búnaði og fyrirhugar að að hefja rekstur þjónustu sinnar í ársbyrjun 2008. Hafði Icecell gert samning við Mílu ehf. um hýsingu á búnaði.
Icecell hafði í hyggju að ná til 98% landsmanna með GSM dreifikerfi sínu. Icecell er í eigu svissneskra aðila og eru höfuðsstöðvar þeirra á Íslandi á Flugvallarvegi í húsnæði Flugbjörgu. Í svari IceCell við fyrirspurn frá Póst- og fjarskiptastofnun á síðasta ári kemur fram að fjármálakreppan á Íslandi hafi spillt áformum IceCell frá upphafi.
Sjá nánar á síðu Póst- og fjarskiptastofnunar
|
|
|
Skjámynd ehf: Minnsta PC-tölva í heimi |
fit-PC2 er PC-tölva sem er lítil að utan en stór að innan. Tölvan er einungis 101mm x 115mm x 27mm að stærð. Þrátt fyrir lítið ytra umfang er hér um að ræða öfluga PC-tölvu sem hentar fyrir alla almenna tölvunvinnu á heimili eða vinnustað. Vinnsluhraðinn er 1,6GHz, innra minni 1GByte og harður diskur er 160GByte (2,5"). Með tölvunni fylgir lítill aflgjafi sem breytir 230VAC í 12VDC sem er vinnuspenna tölvunnar. Þar af leiðandi er þessi tölva hentug bæði til notkunar í bátum og bílum þar sem 12VDC spenna er alltaf fyrir hendi. fit-PC2 vinnur alveg hljóðlaust þar sem hún inniheldur enga kæliviftu. Aflnotkun er einungis 8W max. Hægt er að fá tölvuna meðm mismunandi stýrikerfum, þ.e. Linux, Windows-XP og Windows-7. Skjámynd ehf er umboðsaðili fyrir fit-PC2 á Íslandi en framleiðandinn er Compulab í Ísrael. Sjá nánar hér.
|
|
|
Míla: Nýtt mastur reist á Ólafsfirði |
Míla reisti nýlega nýtt mastur á Ólafsfirði, en mastrið stendur við tækjahús Mílu á Ólafsfirði. Um er að ræða 18 metra stálmastur sem smíðað var á Akureyri. Mastrið er hluti af þjónustu Mílu við 3G uppbyggingu Símans, en mastrið er það hátt og sterkt að það getur hæglega hýst búnað annarra fjarskiptafyrirtækja líka. Mastrið eykur því aðstöðu Mílu umtalsvert, til að þjóna fjarskiptafyrirtækjum á svæðinu. Stöðugt er verið að auka á aðstöðu hjá Mílu til að þjónusta fjarskiptafyrirtækin um land allt, en mikill búnaður fylgir oft þeirra þjónustu. 3G væðing stendur yfir um landið og þegar aðstöðu skortir, þá kemur Míla á móts við fjarskiptafyrirtækin, t.d. með því að reisa möstur sem þetta, til að geta hýst búnað sem nauðsynlegur er svo hægt verði að veita notendum þá þjónustu sem kallað er eftir. Sjá nánar hér.
|
|
|
Póst- og fjarsk.st.: Verðsamanburður á fjarskiptaþjónustu |
Mánaðarlega birtir Póst- og fjarskiptastofnun á vefsíðu sinni pfs.is verðsamanburð á fjarskiptaþjónustu á Íslandi. Verðsamanburður fyrir marsmánuð´10 er nú kominn til birtingar. Í þeim frumskógi sem þessi verðlagning er fyrir hinn almenna notanda þá er mikil hjálp í þessum samanburðarskýrslum. Sjá nánar hér.
|
|
|
DANICE - Aukið öryggi með nýjum sæstreng |
|
Nýr sæstrengur, sem tengir saman Ísland og Evrópu, var tekin í notkun í dag þegar Vodafone opnaði fyrir umferð viðskiptavina sinna um strenginn. Um er að ræða sæstreng milli Íslands og Danmerkur, svokallaðan Danice-streng, sem nýlega var lagður milli landanna. Strengurinn tryggir aukið öryggi í gagnaflutningi til og frá Íslandi auk þess sem netsamband við umheiminn verður bæði hraðara og enn tryggara en áður. Vodafone er fyrsti notandi nýja sæstrengsins.
Með tilkomu Danice-strengsins hefur Vodafone tryggt sér fjórar mismunandi gagnatengingar við umheiminn, sem tryggir meira samskiptaöryggi en önnur fjarskiptafyrirtæki á Íslandi. Hinir sæstrengirnir eru Farice-1, sem liggur milli Íslands, Færeyja og Skotlands, Cantat-3 sem tengir Evrópu og Kanada, og Greenland Connect sem tengir saman Ísland, Grænland og Kanada.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Intenetið samanstendur af 487 milljörðum af GigaByte |
|
Ef allar upplýsingar Internetsins væru skrifaðar í bækur mundi bókastaflinn geta náð tíu sinnum frá Jörðinni til plánetunnar Plútó. Allar myndirnar okkar og ótrúlegt magn af nettengdum öryggismyndavélum hafa valdi svo mikilli aukningu á gögnum Internetsins að það hefur nú náð 486 GigaByte. Hinar stafrænu myndavélar sem gera okkur mögulegt að sýna myndir á Netinu valda mikilli gagnaaukningu. Og vegna þess að farsímarnir eru í auknu mæli að tengjast Internetinu, kemur fram í framtíðarspám bandarísku rekstrarfyrirtækjanna IDC og EMC að gagnamagnið mun tvöfaldast á næstu 18 mánuðum.
Þegar þessi fyrirtæki mældu fyrst umfang Internetsins árið 2007 fundu þeir út að gagnamagn Internetsins væri um 161 milljarðar GigaByte, en það hefur nú vaxið upp í tæpa 500 milljarða GigaByte. Rúmlega 70% af gögnunum koma frá einstaklingum, þ.e. tölvupóstur, símtöl, bankavinnsla, myndaalbúm o.fl. Efni frá almenningi og sú þróun að farsíminn er í vaxandi mæli farinn að tengjast Internetinu hefur veruleg áhrif til aukningar gagna á Netinu.
Fyrirtæki og stofnanir geyma mikið gagnamagn á Netinu og þar af er um 30% af gögnunum kóðað, t.d. banakaupplýsingar. IDC og EMC reikna með að slíkar upplýsingar aukist mikið og kóðuð gögn verð um 45% af gögnum fyrirtækja árið 2012. Í þessari rannsókn kemur einnig fram að heildar árlegur kostnaður við vélbúnað Internetsins, þ.e. í tölvum, netbúnaði o.fl. sé um 800 billjónir króna.
|
|
|
Farsímasala dróst saman um 9,4% á fyrsta ársfjórðungi og er útlit fyrir að salan dragist saman um 4,2% í ár. Er það í fyrsta skipti í meira en sex ár sem salan dregst saman, samkvæmt upplýsingum frá Gartner rannsóknarfyrirtækinu. Alls seldust 269 milljón farsímar á fyrsta fjórðungi ársins.
Þrátt fyrir samdrátt í farsímasölu þá jókst sala á svokölluðum „smartsímum" um 12,7%. Með þeim símum er hægt að vafra á netinu og horfa á myndbönd. Alls seldust 36,4 milljónir slíkra síma í fjórðungnum.
Enn og aftur seldi Nokia flesta farsíma á tímabilinu en alls seldust 97 milljónir Nokia farsíma á fyrsta ársfjórðungi. Hins vegar dregst markaðshlutdeild félagsins saman, úr 39,1% á fyrsta ársfjórðungi í fyrra í 36,2% á sama tímabili í ár. Samsung er í öðru sæti listans með 19,1% markaðshlutdeild sem er aukning úr 14,4% á fyrsta fjórðungi ársins 2008.
|
|
|
Er bandaríska GPS kerfið ekki öruggt? |
|
Háværar aðvörunarraddir heyrast nú í auknu mæli: Bandarísku GPS-gervihnettirnir eru orðnir svo gamlir að þeir geta orðið óvirkir hvenær sem er. Í meira en 20 ár hafa 35 gervihnettir, sem eru á brautum umhverfis jörðina, vísað okkur veginn án vegakorts. Nú eru þessir gervihnettirnir komnir á aldur og geta því hvenær sem er bilað samkvæmt nýrri skýrslu frá amerísku ríkisstofnuninni GOA (Government Accountability Office, red.).
Bandaríska flugvarnareftirlitið annast viðhald á gervihnöttunum, en jafnvel þó að þeir séu byrjaðir á endurnýjun, þá gengur það einfaldlega of seint samkvæmt skýrslu GOA. Endurnýjun gervihnattanna átti að hefjast með því að fyrsta gervihnettinum skildi skotið á loft fyrir tveimur árum síðan (2007), en er nú á áætlun í nóvember næstkomandi (2009).
“ Það er ekki öruggt að flugvarnareftirlitið ráði við að endurnýja alla gervihnettina nógu snemma til að núverandi GPS-þjónusta verði ótrufluð” segir einnig í skýrslunni. Verði einhverjir gervihnattanna óvirkir mun það fyrst hafa áhrif á nákvæmni staðsetninga, en gæti líka endað með því að kerfið yrði alveg ónothæft.
|
|
|
Verður Firefox orðinn vinsælasti vafrinn eftir 4 ár? |
|
Hugbúnaðarfyrirtæki Mozilla spáir því að Internet Explorer verði litli bróði í vafrafjölskyldunni árið 2013.
Hugbúnaðarfyrirtækið Mozilla gaf út fyrsta ókeypis Fierfox Internetvarfann árið 2004. Síðan þá hefur þessi vafrahugbúnaður verið í mikilli sókn á markaðnum. Kóngurinn í fjölskyldunni var þá, eins og í dag Internet Explorer. Þegar Firefox kom út í fyrsta sinn hefur notkun á Internet Explorer farið úr 90% af markaðnum niður í tæplega 70%. Á sama tíma hefur Firefox vaxið út 0% í 22% samkvæmt seinustu mælingu á notkun Internetvafra. Samtímis hefur notkun á ApplesSafari vafranum líka vaxið, en notkun á norska vafranum Opera hefur staðið í stað og aukning notkunar á Googles Chrom vafranum er varla mælanleg.
Könnunin bendir til þess samkvæmt upplýsingum frá Mozilla að notkun á Firevox verði orðin meiri en notkun á Internet Explorer árið 2013 – þ.e.a.s. ef þróunin verður sú sama og hingað til.
Þetta er samt sem áður hreinar tilgátur frá framleiðanda Firefox, því að ómögulegt era ð vita nema t.d. Chrome nái mikilli aukningu á sinni markaðshlutdeild, eða hvort Microsoft verði gert að aðlaga Windows með öðrum vöfrum.
|
|
| | << Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
| | Úrslit 1 - 15 af 393 |
|
|