Fjarskiptafyrirtæki:

Vodafone valtakki
valtakki_mila
RÚV valtakki

Tæknigreinar:

valtakki_httv
valtakki skýrslugerð
valtakki_skjalasafn
valtakki_gervihnattatækni

Félög:

Loftskeytafélag

Póstlistinn:

Skráðu þig á póstlistann og fáðu
send fréttabréf og tilkynningar.







Fjarskiptahandbokin

Innskráning á lokað svæði:

Margt af efni þessarar síðu er á
lokuðu svæði. Allir geta fengið aðgang að lokaða svæðinu
með því að skrá sig fyrir aðgangi hér að ofan. Aðgangur að svæðinu er viðkomandi að kostnaðarlausu en hann verður að vera því samþykkur að fá reglulega sendan netpóst frá
fjarskiptahandbokin.is






Týnt lykilorð?
Ekki með aðgang? Búðu til einn

RSS fréttir

Forsíða
Nýjir Digital Ísland endurvarpar á vesturlandi

Digital ÍslandÍ síðustu viku settu tæknimenn Vodafone upp tvo nýja UHF-endurvarpa fyrir Digital Ísland á vesturlandi. Þeir eru:

1. Í Girðisholti á Mýrum í Borgarfirði var settur endurvarpi á UHF rás 29 og sendir hann merki sitt til austurs yfir Mela og Leirársveit. Sumarhúsabyggðir undir Hafnarfjalli ná þessu merki einnig vel.

2. Á Svarfhólsháls við Svínadal var settur endurvarpi og er hann á UHF rás 26. Hann dekkar Svínadal og hluta Leirársveitar og Hvalfjarðar, auk þess að dekka ágætlega upp Eilífsdal við Meðalfellsvatn.

Með þessum endurvörpum og einnig endurvarpanum sem nýlega var settur upp í Skorradal hefur Vodafone stórbæta dreifingu á Digital Ísland og þar með þjónustuna við stórar sumarhúsabyggðir. Það lætur nærri að með þessir endurvarpar nái til um 1000 sumarhúsa sem ýmist höfðu ekkert eða þá mjög lélegt sjónvarpsmerki.

Nánari upplýsingar um endurvarpana má finna hér á síðunni í Vodafone-kaflanum, þ.m.t. nýtt kort yfir Digital Ísland dreifikerfið.

 
Vodafone: Ný GSM stöð við Landeyjahöfn

GSMNý GSM stöð frá Vodafone var gangsett í Landeyjahöfn nokkru áður en siglingar Herjólfs færðust þangað úr Þorlákshöfn, þann 20. júlí. Farsímanotkun á svæðinu mun aukast verulega við opnun hafnarinnar og því var nauðsynlegt að auka afkastagetu kerfisins. Þörfin verður mest í kringum verslunarmannahelgina, þegar þúsundir Þjóðhátíðargesta sigla milli lands og Eyja.

Þess má einnig geta að færanleg GSM símstöð Vodafone (sérútbúin kerra) er komin til Eyja, en hún er gjarnan gangsett þar sem von er á miklu fjölmenni til að tryggja okkar viðskiptavinum gott GSM samband þar sem álag á símkerfið er óvenju mikið í stuttan tíma í senn. Færanlega símstöðin verður að sjálfsögðu prófuð ítarlega áður en Þjóðhátíðin gengur í garð, en afkastageta hennar hefur verið tvöfölduð frá því í fyrra sem kemur sér vel þar sem búist er við metfjölda gesta á Þjóðhátíðina í ár.

 
Vodafone: Digital Ísland endurvarpi í Skorradal

sendiloftnet140.jpgSumarbústaðaeigendur í Skorradal geta nú orðið náð útsendingum Digital Ísland í Skorradal. Endurvarpssendir er kominn upp sem staðsettur er við stífluhús Andakílsvirkjunar og næst merki hans vel inn dalinn. Mælingar sýna að þegar komið er innst í dalinn þar sem ekki er lengur sjónlína má samt ná merki frá endurvarpssendinum ef notaður er loftnetsmagnari. Stór hluti sumarbústaða í dalnum nær þessu merki þó án magnara. Sendingin er á UHF rás E29. Sjónvarpsdagskrár á þessum sendir eru: RÚV / Stöð 2 / Stöð 2+ / Stöð 2 Bíó / Stöð 2 Extra / SkjárEinn / Stöð 2 Sport / Stöð 2 Sport 2  og hljóðvarpsdagskrár: Bylgjan / X-ið / Létt Bylgjan.

 
Síminn: Ljósnet inn á um fjörutíu þúsund heimili á höfuðborgarsvæðinu

siminn_ljosanet..jpgSíminn hefur ákveðið að ráðast í umfangsmikla uppbyggingu sem felur í sér breytingu á Breiðbandi Símans yfir í Ljósnet Símans. Þetta þýðir að á næstu tveimur árum verði um 40 þúsund heimili á höfuðborgarsvæðinu tengd við svokallað ljósnet Símans.  Þetta er bylting fyrir neytendur sem munu nú fá aðgang að allt að 100 Mb hraða á sekúndu á mjög góðu verði. Á einungis tveimur árum mun þessum fjörutíu þúsund heimilum gefast kostur  á margföldum Internethraða og háskerpu-, gagnvirku sjónvarpi svo fátt eitt sé nefnt.
Meðfylgjandi mynd sýnir áætlaða uppbyggingu á Ljósneti Símans. Á þessu svæði eru um 60 þúsund heimili en 40 þúsund heimili munu eiga kost á því að tengjast Ljósneti Símans. Sjá nánar á vefsíðu Símans.  Sjá einnig stærra kort með því að klikka á myndina.

 
IceCell: Hættir við að byggja GSM-kerfi á Ísland

gsm_island.jpgPóst- og fjarskiptastofnun hefur afturkallað tíðniheimild farsímafyrirtækisins IceCell fyrir GSM 1800 farsímanet frá árinu 2007.  Tíðniheimildin er afturkölluð vegna vanefnda fyrirtækisins á að standa við skilmála heimildarinnar, sem kvað á um uppbyggingu farsímanets í áföngum fyrir tiltekin tímamörk. Í frétt sem birtist á mbl.is árið 2007 kom fram að fjarskiptafyrirtækið Icecell sé hefja vinnu við uppsetningu á sendum og öðrum búnaði og fyrirhugar að að hefja rekstur þjónustu sinnar í ársbyrjun 2008. Hafði Icecell gert samning við Mílu ehf. um hýsingu á búnaði.
Icecell hafði í hyggju að ná til 98% landsmanna með GSM dreifikerfi sínu. Icecell er í eigu svissneskra aðila og eru höfuðsstöðvar þeirra á Íslandi á Flugvallarvegi í húsnæði Flugbjörgu. Í svari IceCell við fyrirspurn frá Póst- og fjarskiptastofnun á síðasta ári kemur fram að fjármálakreppan á Íslandi hafi spillt áformum IceCell frá upphafi.

Sjá nánar á síðu Póst- og fjarskiptastofnunar

 
Skjámynd ehf: Minnsta PC-tölva í heimi
fit_pc_lykill140.jpgfit-PC2 er PC-tölva sem er lítil að utan en stór að innan. Tölvan er einungis 101mm x 115mm x 27mm að stærð. Þrátt fyrir lítið ytra umfang er hér um að ræða öfluga PC-tölvu sem hentar fyrir alla almenna tölvunvinnu á heimili eða vinnustað. Vinnsluhraðinn er 1,6GHz, innra minni 1GByte og harður diskur er 160GByte (2,5"). Með tölvunni fylgir lítill aflgjafi sem breytir 230VAC í 12VDC sem er vinnuspenna tölvunnar. Þar af leiðandi er þessi tölva hentug bæði til notkunar í bátum og bílum þar sem 12VDC spenna er alltaf fyrir hendi. fit-PC2 vinnur alveg hljóðlaust þar sem hún inniheldur enga kæliviftu. Aflnotkun er einungis 8W max. Hægt er að fá tölvuna meðm mismunandi stýrikerfum, þ.e. Linux, Windows-XP og Windows-7.  Skjámynd ehf er umboðsaðili fyrir fit-PC2 á Íslandi en framleiðandinn er Compulab í Ísrael. Sjá nánar hér.
 
Míla: Nýtt mastur reist á Ólafsfirði
mila_masturolafsfirdi_130.jpgMíla reisti nýlega nýtt mastur á Ólafsfirði, en mastrið stendur við tækjahús Mílu á Ólafsfirði.  Um er að ræða 18 metra stálmastur sem smíðað var á Akureyri.  Mastrið  er hluti af þjónustu Mílu við 3G uppbyggingu Símans, en mastrið er það hátt og sterkt að það getur hæglega hýst búnað annarra fjarskiptafyrirtækja líka.  Mastrið eykur því aðstöðu Mílu umtalsvert, til að þjóna fjarskiptafyrirtækjum á svæðinu. Stöðugt er verið að auka á aðstöðu hjá Mílu til að þjónusta fjarskiptafyrirtækin um land allt, en mikill búnaður fylgir oft þeirra þjónustu.  3G væðing stendur yfir um landið og þegar aðstöðu skortir, þá kemur Míla á móts við fjarskiptafyrirtækin, t.d. með því að reisa möstur sem þetta, til að geta hýst búnað sem nauðsynlegur er  svo hægt verði að veita notendum þá þjónustu sem kallað er eftir. Sjá nánar hér.
 
 
Póst- og fjarsk.st.: Verðsamanburður á fjarskiptaþjónustu
pfs_logo.gifMánaðarlega birtir Póst- og fjarskiptastofnun á vefsíðu sinni pfs.is verðsamanburð á fjarskiptaþjónustu á Íslandi. Verðsamanburður fyrir marsmánuð´10 er nú kominn til birtingar. Í þeim frumskógi sem þessi verðlagning er fyrir hinn almenna notanda þá er mikil hjálp í þessum samanburðarskýrslum. Sjá nánar hér.
 
DANICE - Aukið öryggi með nýjum sæstreng

danica_130.jpgNýr sæstrengur, sem tengir saman Ísland og Evrópu, var tekin í notkun í dag þegar Vodafone opnaði fyrir umferð viðskiptavina sinna um strenginn. Um er að ræða sæstreng milli Íslands og Danmerkur, svokallaðan Danice-streng, sem nýlega var lagður milli landanna. Strengurinn tryggir aukið öryggi í gagnaflutningi til og frá Íslandi auk þess sem netsamband við umheiminn verður bæði hraðara og enn tryggara en áður. Vodafone er fyrsti notandi nýja sæstrengsins.
Með tilkomu Danice-strengsins hefur Vodafone tryggt sér fjórar mismunandi gagnatengingar við umheiminn, sem tryggir meira samskiptaöryggi en önnur fjarskiptafyrirtæki á Íslandi. Hinir sæstrengirnir eru Farice-1, sem liggur milli Íslands, Færeyja og Skotlands, Cantat-3 sem tengir Evrópu og Kanada, og Greenland Connect sem tengir saman Ísland, Grænland og Kanada.

Lesa meira...
 
Intenetið samanstendur af 487 milljörðum af GigaByte

BókastafliEf allar upplýsingar Internetsins væru skrifaðar í bækur mundi bókastaflinn geta náð tíu sinnum frá Jörðinni til plánetunnar Plútó. Allar myndirnar okkar og ótrúlegt magn af nettengdum öryggismyndavélum hafa valdi svo mikilli aukningu á gögnum Internetsins að það hefur nú náð 486 GigaByte. Hinar stafrænu myndavélar sem gera okkur mögulegt að sýna myndir á Netinu valda mikilli gagnaaukningu. Og vegna þess að farsímarnir eru í auknu mæli að tengjast Internetinu, kemur fram í framtíðarspám bandarísku rekstrarfyrirtækjanna IDC og EMC að gagnamagnið mun tvöfaldast á næstu 18 mánuðum.
Þegar þessi fyrirtæki mældu fyrst umfang Internetsins árið 2007 fundu þeir út að gagnamagn Internetsins væri um 161 milljarðar GigaByte, en það hefur nú vaxið upp í tæpa 500 milljarða GigaByte. Rúmlega 70% af gögnunum koma frá einstaklingum, þ.e. tölvupóstur, símtöl, bankavinnsla, myndaalbúm o.fl.  Efni frá almenningi og sú þróun að farsíminn er í vaxandi mæli farinn að tengjast Internetinu hefur veruleg áhrif til aukningar gagna á Netinu.
Fyrirtæki og stofnanir geyma mikið gagnamagn á Netinu og þar af er um 30% af gögnunum kóðað, t.d. banakaupplýsingar. IDC og EMC reikna með að slíkar upplýsingar aukist mikið og kóðuð gögn verð um 45% af gögnum fyrirtækja árið 2012. Í þessari rannsókn kemur einnig fram að heildar árlegur kostnaður við vélbúnað Internetsins, þ.e. í tölvum, netbúnaði o.fl. sé um 800 billjónir króna. 

 

 

 
Farsímasala dregst saman

Farsímasala dróst saman um 9,4% á fyrsta ársfjórðungi og er útlit fyrir að salan dragist saman um 4,2% í ár. Er það í fyrsta skipti í meira en sex ár sem salan dregst saman, samkvæmt upplýsingum frá Gartner rannsóknarfyrirtækinu. Alls seldust 269 milljón farsímar á fyrsta fjórðungi ársins.
Þrátt fyrir samdrátt í farsímasölu þá jókst sala á svokölluðum „smartsímum" um 12,7%. Með þeim símum er hægt að vafra á netinu og horfa á myndbönd. Alls seldust 36,4 milljónir slíkra síma í fjórðungnum.
Enn og aftur seldi Nokia flesta farsíma á tímabilinu en alls seldust 97 milljónir Nokia farsíma á fyrsta ársfjórðungi. Hins vegar dregst markaðshlutdeild félagsins saman, úr 39,1% á fyrsta ársfjórðungi í fyrra í 36,2% á sama tímabili í ár. Samsung er í öðru sæti listans með 19,1% markaðshlutdeild sem er aukning úr 14,4% á fyrsta fjórðungi ársins 2008.

 

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 1 - 15 af 395
Vefsíður.is
Hringiðan
Smith&Norland
Skjamynd ehf

Nýjustu spjallgreinar

    Vinsælustu spjallþræðir